Hugform ehf. - námskeið, fræðsla, ráðgjöf - Rósa Traustadóttir - Miðengi 3 - 800 Selfoss - s. 482 2296/898 2295

[heim]

FENG SHUI, hvert einasta ástand er einstætt.
Grein eftir Rósu Traustadóttur

Það hefur heilmikið verið ritað og rætt um Feng Shui á Íslandi á undanförnum mánuðum og er það vel. Það er alveg ljóst að alltaf þegar um víðfeðm fræði er ritað er mismunandi bakgrunnur notaður og oft byggt á of litlum heimildum. Feng Shui (borið fram “fong svæ”) er mörg þúsund ára fræðigrein og sem slík yfirgripsmikil og flókin, gömlu meistararnir voru allt sitt líf að læra fræðin. Það er því svolítið sorglegt þegar ritað er um Feng Shui sem eitthvað einfalt og auðvelt og taka það út úr samhengi því fræðin einmitt byggja á heild, einingu og jafnvægi. Það er því ekki rétt að hægt sé að taka eitthvað eitt út úr og taka síðan ekki tillit til þess sem eftir er því það getur gert meira skaða en gagn. Það er líkt og að planta rósum í grýttan jarðveg, þær munu ekki dafna.
Feng Shui er í raun aðferð til að skapa jafnvægi milli fólks og umhverfis þannig að báðum aðilum líði betur. Hugsunin er sú að manneskjan, jörðin og alheimurinn myndi heildarsamræmi.
Feng Shui þróaðist þegar farið var að skoða að manneskjan verður fyrir áhrifum af umhverfi sínu bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. Sum svæði eru heilbrigðari, friðsælli og betur til búsetu fallinn.
Feng Shui þýðir orðrétt: Vindur og vatn. Vindurinn dreifir chi, það sem oft er nefnt hin ósýnilega lífsorka og vatnið rúmar hana. Þegar verið er að vinna með Feng Shui þá dregur maður að cheng chi hina jákvæðu orku og beinir frá cha chi eða hinni neikvæðu orku
Feng Shui byggir fyrst og síðast á jafnvægi og þar kemur inn Yin og Yang, samkvæmt austurlenskum fræðum er hægt að flokka allt samvkæmt Yin og Yang og ekkert getur orðið úr Yin ef ekki kemur til Yang líkt og ef myrkrið(yin) væri ekki til staðar væri heldur ekkert ljós (yang).
Þar sem er gott jafnvægi þar er gott Feng Shui en það er einmitt ójafnvægi hvers konar sem á sök á erfiðleikum, vanlíðan, veikindum osfrv. Ef náttúran er í ójafnvægi þá flæða ár yfir bakka sína, eldgos spúa, fellibyljir herja og svo mætti lengi telja. Þegar manneskja er í ójafnvægi getur það komið fram á ýmsan hátt s.s. viðkvæmni, rifrildi, þunglyndi, veikindi ýmis konar. Það má líkja þessu öllu við kvóta, hver eining hefur sinn kvóta ef farið er yfir kvótann skapast ójafnvægi. Það er því hið hárfína jafnvægi sem nauðsynlegt er.
Feng Shui fræðin flokkast í nokkuð marga skóla eða stefnur og mismunandi hvað hver meistari eða ráðgjafi sérhæfir sig í. En það er með Feng Shui eins og smiðinn að mismunandi aðstæður krefjast mismunandi verkfæra og því er oft notuð fleiri en ein stefna. 

Helstu skólar/stefnur í Feng Shui eru:
Form skólinn; tekur mið af formi, stuðningi og hinum 4 himnesku dýrum. 
Áttavita-skólinn; tekur mið af höðuðáttunum
8 húsa-kenningin; tekur mið af hinum átta húsum, bestu og verstu áttum.
Flying star Feng Shui; tekur mið af útreikningi samkvæmt höfuðáttum, aldur húsa og talnapörum.
Black hat skólinn; tekur ekki mið af áttavita heldur inngangi að híbýli.

Allir skólarnir taka síðan mið af elementunum fimm þ.e. vatni, tréi, eldi, jörð og málmi og þeirra samspili. Hægt er að auka og minnka hvert element eftir því sem við á. Vegna þess að hvert einasta ástand er einstætt er þess vegna nauðsynlegt að taka mið af því heildræna, að sjá heildarmyndina en ekki að detta í eitt smáatriði og gleyma sér í því það er ekki Feng Shui.

Feng Shui fræðin hafa stundum verið nefnd innréttingaheimspeki, það tel ég ekki vera réttnefni því fræðin eru svo miklu meiri en það en aðalmarkmiðið er að manneskjunni líði vel og finni sig í umhverfi sínu. 
Heimili hvers og eins á að vera griðarstaður þar sem öllum líður vel ef svo er ekki er eitthvað ójafnvægi til staðar sem hægt er í mörgum tilvikum að laga. Sama lögmál á við vinnustaði. Ólík öðrum stefnum og straumum sem viðkemur híbýli og umhverfi miðast Feng Shui ekki við tískustrauma og bylgjur heldur er sjálfstæð og örugg miðað við hverfulleika tískunnar.
Gott Feng Shui getur aukið velgengni, fjárstreymi, bætt heilsu, bætt samskipti hvers konar en það þýðir ekki að manneskjan sjálf þurfi ekki lengur að framkvæma heldur er þetta ákveðið samspil sem tvinnast áfram og því er stundum sagt að Feng shui sé  ekki áfangastaður heldur stöðugt ferðalag.

Þegar byrjað er að skoða híbýli er byrjað á forminu, þe. Hvernig liggur húsið?, hvar er framhliðin?, hvar er bakhliðin?, er stuðningur við húsið eða vantar stuðninginn? Formið byggir í raun á að vera ekki berskjaldaður, líkt og góður hægindastóll sem veitir stuðning úr öllum áttum og þú færð öryggistilfinningu sem þig vantar þegar þú situr á kolli.
Á bak við í norðri er skjaldbakan, fyrir framan í suðri er phoenix fuglinn, til hægri í vestri er hvíti tígurinn og til vinstri er græni drekinn í austri. Þar sem tígurinn og drekinn mætast er besta staðan fyrir húsið samvkæmt form-skólanum. Það er nauðsynlegt að phoenix fuglinn hafi ákveðið rými til suðurs og eins nauðsynlegt að hafa góðan stuðning í norðri eða á bakvið því eins og flestir íslendingar eru meðvitaðir um er ekki gott að vera berskjaldaður.
Því næst er hugað að aðkomu hússins, hvaða tilfinningu fær gestkomandi fyrir íbúum hússins? Það eru ótrúlega miklar upplýsingar sem liggja í þeirri skoðun. Þeir sem einhvern tímann hafa borið póst í hús  gera sér grein fyrir þessu. Þú færð strax á tilfinninguna hvers eðlis er, hver gildi íbúanna er.
Snyrtimennska er að mörgu leyti fyrsta reglan í Feng Shui, ef allt er á kaf í óreiðu hverfur einbeitingin og manneskjan verður hluti af óreiðunni. Óreiða letur en snyrtimennska hvetur. Allir burðast með ótrúlega mikin óþarfa með sér, geymsluloft, bílskúrar, hillur eru oft á tíðum full af óþarfa dóti og drasli sem við tímum ekki að losa okkur við, höldum að við þurfum einhvern tímann á því að halda. Það er til lögmál sem segir að ef þú heldur í of mikið færðu ekkert nýtt í staðinn, þetta lögmál er hægt að yfirfæra á nánast allt. Allt er stöðugt að endurnýjast líkaminn endurnýjar frumur sínar stöðugt, vatnið er á hreyfingu, árstíðir skipta reglulega, tunglið gengur sinn gang svo og önnur himintungl. Manneskjan verður líka að endurnýja sig og bæta. Gömul fastmótuð viðhorf, neikvæðni, reiði, þunglyndi allt er þetta dæmi um staðnaða orku sem ekki hefur verið endurnýjuð. 
Ef þú vilt vinna með Feng Shui á heimili þínu er fyrsta byrjunin að losa sig við óþarfa dót og drasl, sem þú hefur ekkert að gera við, föt sem þú notar ekki lengur, hlutir sem þér þykja ekki vænt um, einnota bækur sem engin les það er til fullt af söfnunum og stofnunum sem taka við slíku og sem kemur að miklu betra gagni en að rykfalla í geymslum. Ofhlaðin hús og ofhlaðnar íbúðir gefa ekki færi á að leyfa orkunni að leika eðlilega um, of margar neikvæðar minningar tengjast mörgum hlutum t.d. þegar fólk með fortíð binst böndum og til er tvennt af öllu er nauðsynlegt að fara vel yfir það sem áætlað er að byggja nýja sambandið á.
Samkvæmt Feng Shui er heimilið griðastaður þar sem öllum á að líða vel, heimilisfólki á að þykja heimilið sitt fallegt og því á að líða vel innan veggja þess, það er gott Feng Shui.
 


_____________________________________________________
[heim]