Hugform ehf. - námskeið,
fræðsla,
ráðgjöf - Rósa
Traustadóttir - Austurvegi 21 c - 800 Selfoss - s. 898 2295
[heim] Yoga Nidra - þar sem slökunin
endar hefst Yoga Nidra: Námskeið í Yoga nidra
hefst þriðjudaginn 10. janúar 2012 kl. 19.30. Fimm
vikna námskeið innifalið aukatími á
fimmtudögum kl. 17.15.
Yoga Nidra má þýða sem jógískur svefn eða hugleiðslu- og heilunarjóga, en það byggist á því að leiða viðkomandi í mjög djúpt slökunarástand en halda samt fullri meðvitund. Í þessari djúpu slökun mælast heilabylgjurnar á svokölluðu alpha theta sviði sem er á svipuðu róli og þegar við erum í afar djúpum svefni. Munurinn er sá að þú er með meðvitund og gerir þér fyllilega grein fyrir veru þinni. Sumir sofna og detta út inn á milli en það breytir því ekki að allir ná mjög djúpu slökunarástandi sem vinnur með líkama og huga. Með tímanum lærir þú að fara dýpra og inn á fíngerðar svið orkulíkamans. Þú nærð að vinna með líkama og huga og skipta út úreltum skoðunum, venjum og dómhörku egósins fyrir kyrrð og slökun hugans. Slíkt vinnur gegn streitu og þreytu sem einkennir svo mjög nútíma samfélagið. Streita og streitutengd vandamál koma ótrúlega víða við og fræðingar segja að allt að 80 % allra sjúkdóma megi tengja að hluta til streitu. Streita hefst þegar við verðum mjög upptekin af því hvernig hlutirnir eiga að vera samkvæmst okkar mælikvarða, að við getum ekki leyft hlutum að vera eins og þeir eru. Við eyðum mikilli orku í að breyta og bæta hluti, umhverfi og manneskjum svo þau falli inn í okkar mælikvarða hvað sé rétt. Í Yoga Nidra leyfum við slökuninni að yfirtaka löngunina til að stjórna og látum af væntingum og kröfum þess hvernig hlutir ættu að vera. Við flæðum inn í slökun sem veitir líkama og huga kyrrð og frið, og komum tilbaka full af orku og ánægju.
Yoga Nidra vinnur með samhæfðri orku þriðja augans sem er mikilvæg orkustöðstaðsett milli augabrúnanna. Með því að örva þessa orkustöð vinnur þú beint með með heilakönglinum (pineal gland) sem eykur framleiðslu á melatonin.
[heim] |