Hugform ehf. - námskeið, fræðsla, ráðgjöf - Rósa Traustadóttir - Miðengi 3 - 800 Selfoss - s. 482 2296/898 2295

[heim]


Hlæjandi Buddha fyrir heilsuna  standandi
Hann er með stóran poka á bakinu þar sem hann safnar erfiðleikum veikindum og vandamálum og einnig ber hann með sér Hu Lu flösku með  helgum vökva fyrir langlífi. Að strjúka magann á honum einu sinni á dag er sagt færa manni gæfu og góða heilsu, ásýnd hans er brosandi og lyftir hugarástandi hvers sem á hann horfir. Gott að setja hann á heilsusvæðið sem er austur hluti hússins, eða hafa hann á skrifborði. (hæð 9 cm)
Kr. 1600. –
 
Þríleggjaði froskurinn eða peningafroskurinn mun færa þér auð og velgengni, hann er mikið notaður í Feng Shui og talið afar sterkt tákn. Settu Þríleggjaða froskinn þinn skáhallt frá útihurðinni þinni þannig að hann snúi inn í húsið þitt eins og hann sé nýkominn inn. Þannig koma peningar til þín annars fara þeir frá þér. Settu hann alls ekki beint á móti hurðinni. Einnig hægt að setja hann í suð-austur hluta hússins til að örva peningaflæði. 
Kr. 2500. - 
Kínversku peningarnir þrír sem festir eru saman með rauðum eða gylltum þræði. Þeir örva peningaflæði til þín og eru eitt auðveldasta og virkasta ráðið til þess í Feng Shui. Lillian Too mælir eindregið með að hafa slíka peninga í veskinu sínu. Þeir eru sagðir draga til sín auð og gæfu hvar sem þeir eru settir. T.d. á bankabókina þína og hvar sem þú villt að auður þinn vaxi. Athugaðu að Yang hliðin snúi upp það er hliðin þar sem kínversku táknin sjást. Að gefa slíka peninga er táknrænt fyrir að gefa öðrum aðgang að heppni og velgengni. Koma í rauðu umslagi með gylltu tákni fyrir velgengni. 
Kr. 1500. -

6 kínverskir peningar fyrir frekari velgengni
Færa þér velgengni líkt og kínversku peningarnir þrír en örva einnig n-vestur svæðið sem eru vinir og velgjörðamenn. Einnig mjög góð remedía fyrir Two Yellow sem er á austur svæðinu árið 2005.
kr. 1500
 

9 hangandi jaði steinar
Í Kína er borin sérlega mikil virðing fyrir Jaði steinum og þeir eru tákn fyrir góða heilsu og langlífi. Hægt að hengja þá á heilsusvæðið í austri eða í svefnherberginu við rúmið.  Efst á Jaði steinunum er áfastur eilífðarhnútur sem er sérlega gott tákn sem færir þér gæfu.
kr. 2500. -

Kínverskar flautur: Flautur eru notaðar til að bæta orkustreymið Chi. 
Hægt að nota sem úrræði fyrir t.d. bita í loftum, eða til að auka fjárstreymi fyrir ofan peningakassann. Koma tvær saman. (lengd er 30 cm) 
Kr. 1300. -
Kristallar eru frábærir til að örva svæði sem stjórnast af jörð samkvæmt elementunum fimm það er suð-vestur, norð-austur og miðjan. Einnig er hægt að nota kristalla til að deyfa of mikla yang orku t.d. frá sólarljósi með því að hengja þá í glugga þannig brýtur kristallinn sólargeislana í yndislega birtu sem speglast um íverustaðinn. Kristallinn er áfastur rauðu bandi með eilífðarhnúti þannig er auðvelt að hengja hann í næsta glugga. (30 mm ath. ekki rétt mynd) 
Kr. 1900. -
Mandarín endur: Til að lífga upp á ástina og rómatíkina er frábært að nota mandarín endur. Gott að setja parið í suðvestur hluta híbýlis eða suðvestur hluta svefnherbergisins. Athuga skal vel að endurnar séu í pörum og ekki stakar. Það er mjög mikilvægt í Feng Shui að nota einmitt pör til að örva suðvestur hluta híbýlis. Þetta eru handmálaðar tré-endur. (lengd 9 cm hæð 5 cm) 
Kr. 1600. 
Pa Kua spegillinn er afar sterkt fyrirbæri í Feng Shui og nota skal hann sparlega. Það má einungis nota hann utandyra og helst er hann notaður þegar eiturörvar (cha chi) beinist að útidyrum t.d. ljósastaur, tré, gata, bílaljós og svo mætti lengi telja. Þá er spegillinn settur fyrir ofan aðaldyrnar og beinir þannig óhollri orku frá dyrunum. Einungis seldur ef nauðsyn krefur.
Kr. 2500. -
Vindharpa: Þessi fallega vindharpa er með holar pípur sem klingja með fallegum tónum. Jafnar orku sem kemur inn og bætir jákvæðum tónum við heimilisorkuna. Gott að setja upp þar sem aðalinnkoman er. Einnig mjög gott að setja í norður og norð-vestur hluta híbýlis. Einnig mjög góð remedía fyrir 5 yellow sem er á norðvestur svæðinu árið 2005. Uppseld í bili.
Kr. 1500. – (40 sm)

Fíllinn
Færir börnum gæfu og gengi gott að hafa á skrifborðum barna og unglinga. Einnig góður fyrir barnlaus pör þá hafður í svefnherbergi hjóna. Einnig hægt að nota hann sem almennt gæfutákn fyrir heimilið þá staðsettur rétt innan við inngang og þá gjarnan í pörum.
kr. 1500. -
 
 

Síminn er 898 2295 og 482 2296
Sendum í póstkröfu
E-mail: rosat@simnet.is
 

[heim]


Ábyrgðarmaður: Rósa Traustadóttir / Vefsíðugerð: Kristín Runólfsdóttir -www.kurl.is