Hugform ehf. - námskeið, fræðsla, ráðgjöf - Rósa Traustadóttir - Austurvegi 21 c - 800 Selfoss - s. 898 2295

[heim]


Heilsuráðgjöf fyrir þig

Ég Rósa Traustadóttir jógakennari útskrifaðist úr fjarnámi við Institute of Intergrative Nutrition í New York  sem Certified Health Counselor eða  Heilsuráðgjafi/lífstílsráðgjafi í janúar 2011.

Ég hef alltaf haft mikin áhuga á heilsu og mataræði, því  tók ég þá ákvörðun að auka þekkingu mína á þessu sviði og fór í þetta nám.

Ég er þjálfuð til þess að ráðleggja fólki um mataræði og heilbrigðan lífstíl og hjálpa skjólstæðingum almennt til betri heilsu.

Hvað er innifalið í heilsuráðgjöfinni?

Þér er boðið upp á frían  tíma þar sem við ræðum þína heilsu og þín markmið, algerlega þér að kostnaðarlausu, engar skuldbindingar!

Ef þú vilt síðan vinna með mér áfram leggjum við niður fyrir okkur framvinduna og skipuleggjum tímana þína. Sem skjólstæðingur minn færðu 2 einkatíma á mánuði, aðgang að mér gegnum tölvupóst eins mikið og þú kýst, prufur af ýmsu nýju til að elda og smakka, fyrirlestra og ýmislegt annað spennandi.

Kostnaðurinn er  kr. 9.500 pr mánuð!
Þú getur líka valið að koma í staka tíma ef þú vilt síður skuldbinda þig til lengri tíma, þá kostar stakur tími kr. 5000.

Hversu hátt verðleggur þú heilsu þína?

Tíminn er 50 mínútur þú getur líka gert þetta í gegnum símann þá hringir þú í mig á tilsettum ákveðnum tíma og við gerum þetta símleiðis. Auðvitað er fullum trúnaði heitið.

Má bjóða þér frían tíma í heilsuráðgjöf?
Ef svo er hafðu þá endilega samband við mig :)

Rósa Traustadóttir
Jógakennari og  heilsuráðgjafi

Sími: 898 2295

 rosat@simnet.is


  Þeir sem vilja fræðast um námið geta skoðað heimasíðu skólans:
www.integrativenutrition.com

 

_____________________________________________________
[heim]